20 janúar 2008

Ástin blómstrar í Holtinu

Jæja sú fyrrverandi er aftur orðin núverandi kærasta. Hún yfirgaf landið í dag og þá er að sjá hvað gerist fyrir norðan þennan mánuð sem Ítalinn minn ætlar að dvelja þar hjá þeirri þýsku. Hann heldur sínu striki með að fara þangað og skoða Norðurlandið með henni enda ekki annað hægt en að skoða eitthvað af landinu fyrst hann á annað borð er kominn.

Æ þau eru nú ægilega krúttleg saman og vonandi fellur allt í ljúfa löð þegar pilturinn kemur aftur heim. 



 

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Iss, það er nú ekki öll nótt úti enn um að eitthvað drama fari af stað. Annars væri þetta ekki almennileg sápa.
Og hvað skeður í þe next epsod of sop? verður það "ég elska þig" á þýsku eða ítölsku? það skýrist í næsta þætti.
kv.
Rannveig Árna