03 október 2008

Harkaleg fæðing

Jæja þá er þetta afstaðið og það með látum. Skilaði af mér í gær eftir nærri tveggja sólarhringa vöku og er gjörsamlega búin á því. Svaf til klukkan fjögur í dag takk fyrir. Það var stuð á mér í kennslunni í gær, var að kenna til 20 um kvöldið og orðin gufurugluð eftir alla þessa vöku ha ha ha, held ég hafi verið farin að syngja fyrir þau tíhíhí. Nú er bara að aðlagast nýju lífi og njóta þess að vera laus við alla þessa pressu. Ég hlakka til að fara að hitta fólk aftur :D

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ædislegt. Til hamingju! vid heyrumst fljotlega!
kvedja Sigurbjörg

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með skilin :o)
Knúsar, Kristín P :o)

Unknown sagði...

Nehei! En frábært!
Innilega til hamingju með skilin og gangi þér vel að aðlagast aftur að heiminum! :)
Knús,
Ingileif.