31 október 2007
28 október 2007
Veisla í Holtinu
Hér er búin að vera standandi veisluhöld í allan dag. Kolbrún A kom í heimsókn með krakkana þannig að ég ákvað að baka eplaköku og pönnsur. Ég stóðst að sjálfsögðu ekki freistinguna og gúffaði í mig vænum skammti af heitri eplaköku með rjóma. Daníel og Kolbrún tóku sig svo til og klipptu nokkra dreadlokka úr feldinum á Snædísi þannig að í stað þess að líta út eins og rastafari þá er hún núna eins og miðaldra pönkari. Daníel er svo kominn með það verkefni að sjá um að kemba henni þegar hann kemur í heimsókn. Ég fæ auðvitað ekki að koma nálægt henni, hræðilega konan með lyfjadæluna.
Í kvöld eldaði ég svo lambalæri a la mamma fyrir allt strákastóðið mitt og var sannkölluð jólastemning í holtinu. Við borðuðum nefnilega inn í stofu, kveiktum á kertum út um allt og drukkum malt og appelsín með matnum.
Í kvöld eldaði ég svo lambalæri a la mamma fyrir allt strákastóðið mitt og var sannkölluð jólastemning í holtinu. Við borðuðum nefnilega inn í stofu, kveiktum á kertum út um allt og drukkum malt og appelsín með matnum.
25 október 2007
Burðardýr óskast!!
Mér skilst að það jaðri orðið við neyðarástand á landinu. Það lítur nefnilega út fyrir að íbúfen sé uppurið í öllum apótekum landsins og ný sending ekki í sjónmáli á næstunni. Nú er lag fyrir þá sem lúra á gömlum birgðum að notfæra sér þennan skort og koma pillunum sínum í verð. Ég væri alveg til í að borga tvöfalt verð fyrir eins og tíu töflur. Ég er nefnilega með slitgigt í axlar- og hnjáliðum og íbúfenið svínvirkar á hana af því það er bæði verkjastillandi og bólgueyðandi. Eins og fleiri þá er ég löngu búin með allt mitt íbúfen og hef svo sem ekkert þurft á því að halda lengi fyrr en í fyrrakvöld að ég fékk þetta hrikalega verkjakast í hægri axlarlið. Það var sama hvað ég reyndi að anda mig í gegnum verkinn, ekkert gekk og þegar ég var farin að gnísta tönnum af sársaukanum þá lét ég mig hafa það að taka 3 parasetamól sem var skárra en ekkert. Daginn eftir kveikti ég allt í einu á perunni að ég hafði af rælni keypt Voltaren krem um daginn og var fljót að maka því á mig. Það virkar svo sem ágætlega en jafnast samt ekki á við íbúfenið. Ég vil bara koma því á framfæri að ef einhver sem mig þekkir er á leið til útlanda þá væri vel þegið að viðkomandi myndi smygla inn svona eins og einum pakka fyrir mig af íbúfeni (það heitir víst ibuprofen í Danmörku og kannski í fleiri löndum). Það er kannski vissara að taka það fram að það er algjör óþarfi að
fela það innvortis.
fela það innvortis.
21 október 2007
Læknisvitjun
Ég get sko ekki kvartað yfir þjónustunni hjá henni Kolbrúnu grasalækni. Hún vitjar manns líka í draumi!! Síðasta vika var ansi strembin hjá mér. Byrjaði á því síðustu helgi að þrífa og stjórnast bæði laugardag og sunnudag enda búin að koma mér í stjórn AA hússins míns og held utan um peningamálin þar. Við vorum að taka húsið í gegn, þrífa og mála og ég var auðvitað mætt 9 bæði laugardag og sunnudag og var á fullu báða dagana. Síðan tók við alla vikuna að fara yfir ein 35 viðtöl nemenda minna sem er afskaplega seinlegt verk enda sum þeirra allt upp í 50 bls. ásamt náttúrulega íslenskukennslunni. Heldur var farið að draga af mér þegar leið á vikuna og á endanum fékk ég Kolbrúnu grasalækni í heimsókn eina nóttina, greinilega að minna mig á að ganga ekki fram af mér. Sem betur þarf ég ekki að fara yfir nein nemendaverkefni þessa vikuna. Verð þó með kynningu á rannsókninni minni á fimmtudagskvöldið og þarf að undirbúa hana en það verður nú ekkert erfitt.
16 október 2007
Reyniberjadýrð
Ég held ég hafi aldrei séð reyniberjatrén jafnfalleg og þessa dagana. Þau eru flest orðin algjörlega lauflaus en þakin eldrauðum berjum. Alveg unaðsleg sjón. Fuglarnir eru samt byrjaðir á veislunni fyrir einhverju síðan en magnið er þvílíkt að það gengur ekkert hjá þeim. Mér sýnist þeir geta gert ráð fyrir berjaveislu nánast fram að jólum. Það væri nú magnað ef trén væru svona á jólunum, bara með jólaskrautið tilbúið á sér :-)
12 október 2007
Skjálfti á Egilsstöðum
Hvað er eiginlega að gerast þarna fyrir austan?! Ég hef alltaf staðið í þeirri trú að það sé eini staðurinn á landinu þar sem maður er öruggur fyrir jarðskjálftum! Sé ég þá ekki á jarðskjálftakortinu sem ég skoða daglega að kl. 18.39 í dag varð jarðskjálfti á 2 m dýpi upp á 2,5 á Richter 3,3 km ANA af EGILSSTÖÐUM!!! Er þetta eitthvað tengt Kárahnjúkum? Jarðskjálftafræðingarnir hafa víst komist að þeirri niðurstöðu að lætin við Upptyppinga í sumar tengist fyllingu Hálslóns. Það er eins gott ég fylgist með. Reyndar sá ég heilmikla hrinu í byrjun vikunnar í Bárðarbungu (stærsti 3,5 á Richter) og í kringum Upptyppinga og Öskju. Ég er kannski eitthvað hysterísk en mér finnst skrítið hvað er gert lítið úr þessu.
Minnisglöp
Hversu pínlegt er það ekki að heilsa bráðókunnugu fólki. Ég var í búð í dag og sá þá mann álengdar sem ég þekki lítillega. Ég veifa honum um leið og ég geng til hans og segi brosandi: Nei hæ, gaman að sjá þig. Hann heilsar en er hálfkindarlegur í framan og það rennur upp fyrir mér að ég er að taka feil. Fyrirgefðu ég hélt þú værir annar. En hann var ekki á því að samþykkja það strax og spurði: Nú hver? Ég varð eins og asni því allt í einu var nafnið þurrkað út úr höfðinu á mér: uuuuhh ég veit það ekki, ég man ekki nafnið. Mér finnst ég nefnilega líka kannast svo við þig sagði hann, ég heiti Steingrímur. Nei nei nafnið er örugglega ekki Steingrímur sagði ég vandræðalega og dreif mig í burtu. Enn man ég ekki nafnið en það er samt í höfðinu á mér. Hrikalega óþægilegt þegar eitthvað dettur svona úr manni. Þetta bendir líklega til þess að ég sé að safna upp einhverju stressi. Eins gott að staldra við og hægja á mér.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
